70 ára afmælidagur í Réttó

Afmæli 3
Afmæli 1

Viðburðaríkur en góður dagur í dag í Réttarholtsskóla. Virðing, virkni og vellíðan verkið okkar fékk góðan stað í salnum okkar og nemendur og starfsfólk gæddu sér á afmælisköku og sungu afmælissönginn. Í hádeginu var borinn fram hátíðarmatur í tilefni dagsins. Svo var eitt og annað sem setti svip sinn á daginn eins og fyrsti snjórinn og óvænt rafmagnsleysi í hádeginu. En glaður og sáttur hópur sem var í hátíðarskapi í dag í Réttarholtsskóla.