Foreldrastarf í Réttarholtsskóla
Markvisst er unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Í hverjum skóla er starfrækt foreldrafélag, foreldraráð eða skólaráð.
Foreldrafélag Réttarholtsskóla
Við Réttarholtsskóla starfar öflugt foreldra félag sem hefur það að markmiði að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.

Stjórn foreldrafélags 2024-2025
- Sigrún Lilja Sigmarsdóttir formaður
- Íris Davíðsdóttir varaformaður
- Aðalbjörg Birna Jónsdóttir ritari
- Inga Kristjönudóttir gjaldkeri