Bleiki dagurinn 💗

Söfnun
Bleiki dagurinn 3

Í tilefni af Bleika deginum tók nemendaráðið höndum saman og stóð fyrir kökusölu á bollakökum í frímínútum til styrktar Krabbameinsfélaginu💗 Þar gafst nemendum kostur á að kaupa sér dýrindis bollakökur og um leið leggja góðu málefni lið.

Allur ágóði sölunnar rann til Krabbameinsfélagsins og söfnuðust alls 106.000 krónur. Það voru formaður og varaformaður nemendafélagsins sem fóru fyrir hönd skólans og afhentu félaginu söfnunarféð í gær.

Við erum afar stolt af þessari góðu þátttöku og þakklát öllum þeim sem lögðu málefninu lið með kaupum, bakstri og aðstoð. Eins hefur Réttarholtsskóli aldrei verið jafn bleikur líkt og þennan dag

Takk allir fyrir að taka þátt og sýna samhug í verki! 💗