Góðgerðardagar nemenda

Góðgerðardagar

 

Dagana 27. - 29. apríl stóð nemendaráðið fyrir góðgerðarviku í skólanum þar sem þau söfnuðu fyrir Barnaspítala Hringsins. Bíókvöld, sala á bakkelsi í frímínútum og happdrætti var á dagskrá þessa daga undir dyggri stjórn krakkana með aðstoð þeirra Örnu kennara og Þorvaldar forstöðumanns Bústaða. Virkilega flott framtak og frumkvæði hjá þessum flotta hópi sem lætur gott af sér leiða.