Skólahlaup Réttó

Skolahlaup

 

Það var mikið líf og fjör í Fossvogsdalnum þegar árlegt skólahlaup Réttó fór fram þann 6. október.

Þátttaka var góð og lögðu nemendur sig fram við að spretta úr spori þessa 3 kílómetra. Bæði rásmark og endamörk voru staðsett við Víkina og þökkum við kærlega fyrir góðar móttökur þar.

Á leiðinni fengu hlaupararnir hvatningu frá nemendum Fossvogsskóla.

 Til hamingju með árangurinn, við erum afar stolt af nemendahópnum okkar